<$BlogRSDURL$>

laugardagur, september 23, 2006

Fellibylur og fylgi fiskar 


Dagurinn í gær var ekkert sérlega merkilegur þangað til seinnipartinn þegar nágranna kona okkar hringir og segir mér að það sér Tornado warning og skuli kveikja á sjónvarpinu. Það lifnaði svona allverulega yfir mér og stuttu seinna kemur Mick og Erin heim! Hann er nú ekkert að kippa sér upp við svona lagað og segir að engar áhyggjur skuli hafa. Fyrir svæðið okkar var búið að breyta Tornado warning í Tornado watch og það er ekki eins hættulegt að warning. Nú við fylgjumst með veðrinu og búum til kvöldmat. Kíkjum öðru hverju út, og svo kemur mikið rok og þá er "fellibylur" að fara fram hjá okkur. Fyrst kemur kaldur vindur, smá rigning, rok og svo kom nett úr helli eftir á. Heyrum svo í Kathy sem er að aka heim í fellibyls rigningu og roki. Rétt eftir að Kathy kemur inn úr dyrunum og við erum ný sest að matarborðinu þá þeyta Almannavarnir lúðra sína og við tökum diskana okkur í flýti með ofan í kjallara. Skyndilega byrjað gríðarlega mikið húrhellis rigning og rok. Stuttu seinna þótti okkur þó óhætt að fara aftur upp. Og svo var þetta búið jafn fljótt og þetta gerðist. Og við Anna Guðrún gátum haldið plani kvöldsins sem var að kíkja á barinn. Sagan er þó ekki öll sögð og ýmisilegt filgdi þessu veðri í gær. Í morgun vakna ég svo við einskonar svona vekjara klukku píp. Kemst þá að því að það er rafmagnslaust og pípið kemur úr þjófavarnakerfinu uppi. Ég fæ þá sögu að nokkrum húsum frá okkur liggi tré á rafmagnslínu og sé kviknað í því og því hafi rafmagnið verið tekið af. Allt í lagi með það þangað til þjófavörnin fer í gang! Og við bara gátum ekkert gert :p eða þangað til Mick kom og fann einhverja lausn á þessu. Svo svona var það. Fyrsta, og vonandi síðasta lífsreynsla mín af fellibyl. Ekki það að mér hafi orðið meint af, ég bara óska engum slæms veðurs.

|

föstudagur, september 22, 2006

Mynd vikunnar og fleira 

Fékk nett sjokk í dag þegar ég áttaði mig á því að á morgun á ég bara viku eftir! :( Þetta er allt of fljótt að líða. Og ég á eftir að gera nokkra hluti, en það verður gert um helgina! :) Svo var ég líka að átta mig á því að flugið mitt frá London er kl.7:30 sem þýðir að ég verð að vera komin út á völl eigi síðar en 5:30 og það tekur um tvo tíma að koma sér frá London til Gatwick, svo ég sé fram á að það borgi sig ekkert að fá sér hótel herbergi. Þannig að ég þarf að skipuleggja þetta eitthvað mjög vel! :) Hvað ég geri og svona!
Ætla að skella inn tveim myndum fyrir vikuna. Önnur er tileinkuð "The windy city" og hin tileinkuð "goofball" -onum mínum tveim sem búa þar. :)

|

Það er bara eitt rétt svar! 

Frétt af fréttavef Morgunblaðsins!

|

mánudagur, september 18, 2006

Mótmæli og undirskriftasöfnun 

Héraðsbúar reistu fánastöng og drógu í hálfa íslenskan fána ofan á
Kárahnjúkastíflu s.l. laugardag.
<http://www.natturuverndarsamtok.is/myndir/15092006.jpg>

Mótmælayfirlýsinguna má lesa hér.
<http://www.natturuverndarsamtok.is/news.asp?ID=386>


Viðtakendur eru vinsamlegast beðnir að kynna sér efni þessa bréfs og
framsenda síðan á þá sem kynnu að hafa áhuga, einstaklinga sem og
póstlista:

Félag um verndun hálendis Austurlands
hefur lengi barist fyrir verndun hálendisins. Nú berst það einnig fyrir
öryggi og heill íbúanna. Þess er krafist að óháð matsnefnd meti áhættu og
arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og fyrr verði engu vatni hleypt á
Hálslón.

Við viljum að fólk geti vegið og metið af skynsemi hvort ekki sé
heillavænlegast að eiga víðernin og vistkerfin áfram og þar með að eyða
þeirri ógn sem af Kárahnjúkavirkjun stafar í byggð. Minnumst þess að
framtíðarland og auðlindir komandi kynslóða eru í húfi.

Í því skyni stendur félagið fyrir blaðaauglýsingum með einföldum texta og
undirskriftum margra einstaklinga, eins margra og í næst.Við hvetjum þig
því til að leggja þitt af mörkum með því að skrá þig á
undirskrift@kjosa.is og vera með í auglýsingunum. Þá er æskilegt að miðla
þessu bréfi til hugsanlegra stuðningsmanna.

Í skeytinu þurfa að vera nafn og titill sem koma eiga fram í
auglýsingunni auk nafns greiðanda ef það annað en þitt eigið. Einnig þarft
þú að leggja inn 1000 kr. á bankareikning félagsins 0305-13-339 c/o
Þorsteinn Bergsson gjaldkeri kt. 270664-5719

Viljir þú ganga í Félag um verndun hálendis Austurlands getur þú sent
skráningu á netfangið felagi@kjosa.is

Fyrirsagnir verða mismunandi í auglýsingum en megintextinn verður þessi:

Á undanförnum árum hafa þrír gagnmerkir íslenskir jarðfræðingar lýst
áhyggjum sínum af stíflustæðum og öryggi Kárahnjúkavirkjunar; Guðmundur E.
Sigvaldason jarðefnafræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Norrænu
eldfjallastöðvarinnar; Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og síðast Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og
prófessor við Rhode Island háskóla í Bandaríkjunum sem lagði til að óháð
nefnd gerði nýtt áhættumat eftir að hafa skoðað sprunguskýrslu Kristjáns
Sæmundssonar og Hauks Jóhannessonar (nóv. 2005). Þessi skýrsla hefur
hvorki verið kynnt né rædd á Alþingi Íslendinga og er þó ítarlegasta og
alvarlegasta rannsóknarskýrsla sem til er um eðli og gerð berggrunns við
Kárahnjúka.

Aldrei í heiminum hefur svo stór stífla verið reist á jafn viðkvæmri
undirstöðu. Landið er á virku belti, jarðhiti er á svæðinu og líklegt að
háhiti hafi verið þar á nútíma. Berglög eru sprungin og misgengin og vís
til að hreyfast þegar vatn og farg þrýsta á þunna jarðskorpuna.

Við teljum áhyggjur þessara virtu jarðvísindamanna af öryggi
stíflumannvirkja svo alvarlegar að nauðsyn beri til að óháðir aðilar
grandskoði framkvæmdina frá jarðfræðilegu sjónarhorni. Komi til válegra
atburða við Kárahnjúka eru almennir borgarar í hættu.

Við höfum áhyggjur af lýðræði á Íslandi. Í ljósi þess að almenningur ber
fjárhagslega ábyrgð á verkinu er eðlilegt að hann fái tækifæri til að
kynna sér vandlega þessa risaframkvæmd í heild og fái að vita ótvírætt
hver áhættan er.

Við tökum undir með Haraldi Sigurðssyni prófessor og
náttúruverndarsamtökum um allt land og krefjumst þess að fram fari óháð
áhættumat á mannvirkjum Kárahnjúkavirkjunar nú þegar. Við krefjumst þess
einnig að unnið verði nýtt, óháð arðsemismat þar sem öll spil eru lögð á
borð, þar með raforkuverð og kostnaðarauki vegna vanræktra rannsókna. Við
krefjumst þess að Alþingi Íslendinga verði kallað saman til að fresta
fyllingu Hálslóns þar til þessi úttekt lítur dagsins ljós.

Fyrr getum við hvorki sofið né vakað áhyggjulaus
_____

Náttúruverndarsamtök Íslands, Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107
Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is nsi@mmedia.is>
www.natturuverndarsamtok.is <http://www.natturuverndarsamtok.is>

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?