fimmtudagur, mars 02, 2006
Útlitsdýrkun!
Við lifum í heimi þar sem útlitið skiptir mjög miklu máli. Allir hamast í ræktinni og borða hollan og góðan mat. Já eða svona næstum því... við verðum að minnst kosti að vera ýkt sæt, ógeðslega flott og töff. Ég sá mynd í gær sem lýsir þessu vel. Þar var myndarlegur maður og velstæður. Hann var yfir sig hrifinn af mjög myndarlegri konu. Leiðir þeirra skiljast og fyrir tilviljun rétt fyrir brúðkaupið sitt sér hann hana aftur en nær ekki að hitta hana. Upp hefst mikil leit. Það verður síðan önnur kona á vegi hans og þau fella hugi saman. Og mikil saga fer í gang sem ég ætla ekkert að segja hér. En áfram heldur hann að leita að konunni sem hann er yfir sig hrifinn og er alltaf næstum búin að hitta hana. Áhorfandi situr spenntur og fylgist með og vonast svo til þess að þau hittist, að allt gangi upp. Að fallegasta konan og myndarlegi ríki maðurinn nái saman. Enda er það líka hinn típíski happy ending sem við öll viljum sjá og lifa. Síðan kemur það í ljós að þau eiga ekkert saman og hann velur konuna sem er ekkert svo falleg og eftir situr maður hálf vankaður og skilur ekki neitt. Þá kemur annar punktur. Ekkert svo fallega konan hefur logið og lifað í lýgi fyrir framan hann og leikið sér að honum. En jafnframt hefur hún verðið samkvæm sjálfri sér og sönn ást kemur í ljós. Þó hún hafi logið að honum þá var hún yfir sig ástfangin af honum og í rauninni lifði hún fyrir hann. Lygin varð til þess að sönn ást lifði og þau náðu saman.
L´Appartment. Frábært frönsk mynd, ekki til á landinu nema þið panntið hana í 2001.
|
L´Appartment. Frábært frönsk mynd, ekki til á landinu nema þið panntið hana í 2001.
miðvikudagur, mars 01, 2006
Boðorðin 10
1. Þú skalt ekki misnota nafn Jeppans.
2. Þú skalt ekki stela neinum Jeppa.
3. Þú skalt ekki myrða í Jeppaferð, eða fyrir utan hana.
4. Þú skalt virða landið og dýrin,því að þau eru það sem gera Jeppaferðir áhugaverðar.
5. Þú skalt sýna öðrum Jeppum virðingu, því að þeir eru fjölskyldumeðlimir.
6. Virtu faðir þinn, móður og nágranna, því að einn daginn gætu þau fengið sér Jeppa.
7. Þú skalt ekki bera ljúgvitni á móti Jeppa, á meðan þú segir veiðisögu.
8. Þú skalt ekki selja jeppann þinn öðrum,án virðingu við Jeppann.
9. Þú skalt ekki vísvitandi skaða Jeppann,eða Jeppa nágrannans.
10. Þú skalt heiðra Jeppann þinn, því hann var gerður til þess að gleðja.
Svona í tilefni kvennaferðar 4x4 um komandi helgi! :)

sunnudagur, febrúar 26, 2006
Blóðbönd og helgin!
Svakalega mikið um að vera í skólanum. Kláruðum grófklipp og bryjuðum á fyrstaklippi. Þetta lítur allsaman ágætlega út. Búin að vera líka alla helgina í skólanum, ferlegt stuð. Nú svo vorum við svo heppin að fá frumsýningarmiða á Blóðbönd á föstudeginum. Frábærlega góð mynd í allastaði. Leikurinn góður, nýr stíll á íslenskri bíómynd og málefnið þess virði að fara að sjá því það ætti að tengja sem flesta. Svo allir á Blóðbönd, kosstar aðeins meira en það er 1000 kr. virði að sjá hana og styrkja íslenska kvikmyndagerð. Ég ætla pottþétt aftur!!!
Wrap-partý á Pravda
Svo rann laugardagurinn upp og enn og aftur skóli. En eftirvæntingin var mest eftir því að fara í partý á Pravda og fagna því að myndin okkar væri búin í tökum! :) Heineken styrkti það og þvílíkt gaman. Fullt af fólki, hefðu samt fl. mátt koma en þetta var fínt. Og upphófst mikil þynnka daginn eftir :p