<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, október 22, 2003

merkilegt nokk 

...hafi þið tekið eftir því að ég skrifa oftast á sunnudögum og miðvikudögum? Áhugavert ja? Veit ekki, smá kannski! :) bara svona pæling :p mjög djúpt! Það er svona, maður verður svo djúpt hugsi í útlöndum!

|

Snilldar brandari!!! :D  

Það stoppaði stór trukkur á rauðu ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona stekkur út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar. Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja.


"Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.


Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram. Þegar trukkurinn stoppaði aftur annars staðar á rauðu ljósi, stoppaði stúlkan hann aftur. Hún stökk út úr bílnum sínum og bankaði á dyrnar hjá bílstjóranum. Aftur skrúfaði hann niður rúðuna. Eins og þau hefðu aldrei talað saman, sagði sú ljóshærða skýrt og greinilega:


"Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.


Hristandi hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur og hélt áfram niður götuna. Á þriðja rauða ljósinu, þá gerðist það sama. Eins og stormsveipur stökk sú ljóshærða út úr bílnum, hljóp að dyrum bílsins og bankaði. Bílstjórinn skrúfar
niður rúðuna. Enn og aftur segir sú ljóshærða:


"Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu."


Þegar það var komið grænt ljós, keyrði trukkurinn af stað með það sama að næsta ljósi. En þegar hann stoppaði í þetta skiptið, dreif hann sig út úr trukknum og hljóp aftur að bíl ljóshærðu konunnar. Hann bankaði á bílrúðuna og þegar hún skrúfaði hana niður, sagði hann:


"Hæ, ég heiti Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN."

|

mánudagur, október 20, 2003

MEGA COOL!!! 

Fór í Virgin um helgina og var að skoða DVD. Það er hægt að kaupa fyrstu Alias seríuna og fyrstu ER seríuna, Sex and the City og fullt af öðrum þáttum og náttúrulega Friends en sá bara 1-4 seríu. Mér finnst þetta mega cool. Komst svo að því að ég hef alltaf sagt Alias vitlaust. Hef alltaf borið það fram sem All-æas en það er sagt A-lí-as (bera a-ið fram eins og ei) :) hehe... vonandi skilst þetta.

|

sunnudagur, október 19, 2003

Laugardagur 

já í gær...
sá týpíska ammeríska vísitölufjölskyldu á Mcdonalds :)
sá loksins Body Shop, en þetta var minnsta og ömurlegasta Body Shop sem ég hef séð
sá Joey nr. 2 úr Friends. Hitti 2 stráka sem keuptu fullt af áfengi handa mér og Louise í gær kvöldi og annar þeirra var allveg eins og Joey úr friends, ítalskur og allt! ;)
hummm hvað sá ég meira...
ah, keypti jólagjöf handa fjölskyldunni í gær :) vííí... ég hlakka svo til að senda þeim hana, mér finnst hún æði... :)

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?