<$BlogRSDURL$>

mánudagur, ágúst 07, 2006

Dæmisaga 

,,Eitt sinn fyrir langa löngu ákváðu nokkur dýr að taka sig saman og drýgja einhverja hetjudáð til þess að mæta áskorun nútímans. Þau voru sammála um að farsælasta leiðin væri að stofna skóla. Dýrin tóku upp virka námskrá sem samanstóð af hlaupum, flugi, sundi og klifri. Námskráin tók yfir allar athafnir dýranna og margskonar líkamlega færni þeirra. Til þess að auðvelda umsjón með námskránni og gæta fyllsta réttlætis þurftu öll dýrin að leggja stund á allar námsgreinarnar og tóku ávallt samræmt próf í greinunum.
Öndin var frábær í sundi, meira að segja betri en sjálfur kennarinn, en hún náði naumlega fullnægjandi einkunn í flugi og var afar lélegur hlaupari. Þar sem hún hljóp of hægt var hún látin sleppa sundi og æfa hlaup í staðinn í sérstökum hlaupsérkennslutímum. Þessu var haldið til streitu þar til sundfitjaðir fætur hennar voru orðnir svo sárir að hún átti erfitt með að synda og varð því aðeins meðalnemandi í sundi í lok annar. En meðaltal var viðunandi í skólanum svo að enginn kippti sér upp við það nema öndin.
Kanínan var í byrjun skólagöngunnar best í hlaupum en fékk fljótlega taugaáfall sökum mikils álags við að bæta sig í sundi. Kanínur og sund eiga illa saman.
Íkorninn var frábær í klifri þar til hann smám saman missti sjálfstraustið vegna flugtímanna. Kennarinn vildi nefnilega að hann hæfi sig á loft frá jörðu í stað þess að stökkva af trjákrónunum og niður til jarðar. Hann fékk líka vöðvakrampa af of mikilli áreynslu. Í einkunn fékk hann síðan C í klifri og D í hlaupum.
Örninn var vandræðafugl. Reynt var að aga hann en með engum árangri. Í klifurtímum var hann fyrstur allra að komast efst upp í tréð en þrjóskaðist við að nota sína eigin aðferð til að komast þangað. Hann neitaði algjörlega að nota þá aðferð sem ætlast var til af skólanum og lenti úti í kuldanum.
Í lok skólaársins var það svo kamelljón sem synti allvel og gat líka hlaupið, klifrað og flogið dálítið sem fékk hæstu meðaleinkunn og dúxaði þar með í skólanum. "
Lítil saga sem ég fann í blaðinu Þroskahjálp.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?