sunnudagur, september 03, 2006
Nýung
Ætla að kynna hér til leiks, nýjung sem mér var að detta í hug. Ég ætla að vera með vikulega mynd hérna í síðunnni og tileinka hana einhverjum minni hluta hóp.
Og í þessari viku er þetta svolítið kaldhæðnislegt þar sem minnihluta hópurinn er; frjálslega vaxið fólk.

|

,,Ég á líf, mamma. Glaða lund, systir. Ég er ALSÆL..."
...og útrúlega hress.
Síðastliðinn föstudag, hittumst við fjórar fræknar frænkur og skiptumst á glaðning eftir að hafa setið matarboð hjá ömmu sem kom færandi hendi frá Danmörku, með skinku og spögepölse. Eftir mikið át var svo hladið í nammileiðangur fyrir fyrirhugað imbakvöld okkar frænkna. Við systurnar vorum með glaðning og hinar systurnar líka. Við komum með fyrstu lögregluskólamyndina en þær frænkur voru með fyrstu tvær seríurnar af Baywatch. :)
Í gær var svo Mojo partý, og þar sem þemað var rautt, og ég á lítið sem ekkert rautt og því skellti ég mér í Kringlu í leiðangur. Ég hef ekki farið þangað í marga mánuði, og leið eins og ég væri í útlöndum. Sem var frábær uppl
ifun. Næsta upplifun sem var engu síðri var sú þegar ég beið eftir strætó. Þegar ég kom út á stoppistöð var nokkur tími í að strætó kæmi svo ég sat bara á gras bletti og beið og horfði í kringum mig á allt og ekkert. Þá rann upp fyrir mér að þetta hafði bara ekki gerst lengi og að ég ætti mér líf aftur. Hefði tíma til að slappa af og bíða eftir strætó og vera slétt sama þó síðast vagnin hefði verið ný farin.
|

Í gær var svo Mojo partý, og þar sem þemað var rautt, og ég á lítið sem ekkert rautt og því skellti ég mér í Kringlu í leiðangur. Ég hef ekki farið þangað í marga mánuði, og leið eins og ég væri í útlöndum. Sem var frábær uppl

fimmtudagur, ágúst 31, 2006
Orðið um seinan?
Ég ætla ekki að afsaka eitt eða neitt. Lærði einhvertíman í æsku að það á ekki að afsaka sig. Það sem að gert er gert og hver og einn verður að læra að taka afleiðingum gjörða sinna. En samkvæmt öðrum hliðum lífsspekinnar er hægt að fara fram á fyrirgefningu. Því óska ég eftir að þið fyrirgefið mér fyrir að hafa ekki skrifað hér nema að mjög svo takmörkuðu leiti. Ég geri mitt besta í að bæta úr þessu, og reyni eftir fremsta megni að skrifa og segja frá einhverju skemmtilegu. En lífið er svo ófyrirséð, að hver veit nema ég lendi ekki í neinu skemmtilegu ...
Neikvæðin tekur stundum völdin en þess er ekki þörf núna. Margt í gangi og margt hefur gerst, og kannski ég segi ykkur stuttlega frá því.
Nóg hefur verið í gangi síðstu vikur og mánuði, og næstum yfir drifið nóg, þar sem ég hef næstum ekkert átt líf, eins og svo flestir vinir og kunningjar hafa tekið eftir. En nú sigli ég lignan sjó, því klukkan 3:30 kláruðum við Latabæ í gær. :) Þetta var rosaleg törn, og ekki fyrir séð hvort okkur tækist þetta, en allir lögðust á eitt og þetta náðist. Og í rauninni fyrr en nokkurn grunaði. :p Vegna mikillar vinnu í Latabæ hvefur lítið gengið á annað en vinna, djammið hefur verið lagt út í horn ásamt ferðalögum, en þetta tvennt var sameinað um verslunnarmannarhelgina, og þótti það fínt. Síðustu helgi, var svo aðeins slett úr klaufunum þar sem Maggi bauð í partý og svo kíktu allir á Stebba á Stuðmannaball út á Gróttu. Feikna mikið fjör og gaman að sjá vinnufélagana upp á dressaða. Svipað verður upp á teningnum í kvöld, þar sem wrap/lokapartý verður haldið. Og það verður sko slett úr klaufunum, og ærlega skemmt sér. Næstu daga blasir svo við undirbúningur fyrir ferðalag. En ég fer til London 10. sept. og næsta dag til Chicago þar sem ég dvel í nokkrar vikur. :) Þetta verður alverg yndislegt og kærkomið frí. Vonin er sú að næla sér í gott veður, alla vegana, hlýrra veður en hefur verið hér. :)
Við sjáum til hvað setur. Ég boða hér með komum mína aftur í bloggheiminn og vona þið njótið góðs af. Því enginn er vitur nema vitrari sé! ;)